Hanna Bje
ég

ég og helga vinkona, hressar á hressó...
fann spurningalista...sem ungfrú reykjavík voru látnar svara...finnst ekkert svo mikið við óhæfi að svara þessu..
þar sem ég ætla einn daginn að koma á laggirnar ungfrú mosó.
Foreldrar: Valgerður Hermannsdóttir hjúkka og eilífðarstúdent og Halldór Bárðason smiður og brandarakall..
Nám-Vinna: "NEMI", íþróttamiðstöðin við Lágafell.Subway.verðandi einkaþjálfari
Áhugamál: Fótbolti, Vinir mínir feitir og mjóir, Ferðalög, aðrar íþróttir
Draumastarfið: það sem mig langar að gera er að bjarga heiminum og byrja á því að læra einkaþjálfara og gera hluta af 50% hlutanum sem er offeitur mjóa og sjúklega flotta. en mig langar svona án alls gríns að verða einkaþjálfari og nota þá kunnáttu til þess að hjálpa krökkum.
Draumabíllinn: Skiptir mig svo sem engu rosa máli hvernig bíll það er ..bara að hann sé með TOPPlúgu..og sé lítill passi í öll stæði og hann má líka alveg framleiða bensín..og geta skipt um lit eftir þvi hvernig skapi maður væri í..
væri líka frábært ef hann gæti þvegið sér sjálfur..draumur
Uppáhaldsmaturinn: auðvita þetta sama og allir..jólamaturinn hans pabba og mömmu..kjúklingabringur slá alltaf í gegn, sama hvernig þær eru
Er Ísland ævintýraland?: tjaa..NEI
Hvað er tíska? sjúklega flókin en skemmtilegt að skoða og fylgjast með, vera bara flottur
Hvernig er fullkominn laugardagur: vakna fyrir hádegi við það að tom jones syngi eitthvað fallegt til mín...
hoppa í ræktina og hleyp af mér rassinn..
fer í hádegismat með grísunum mínum, perlu, dóra og völu..fer svo í smáralind og máta föt og allt passar á mig og er flott og ég eyði fúlgu í kvöldið...þar sem ég elda góðan mat og dett svo rækilega í það með öllum vinum mínum..
...þarf greinilega ekki mikið til að gleðja mig..
Hvernig ætlar þú að slá í gegn?: í ameríku.
Hver er þekktasta persónan sem þú hefur séð? teddy sheringham, eið smára, totti, bartezh...ææ get talið svona endalaust..páll óskar, hitti siggu beinteins og sveppa á djamminu um daginn..vorum só klós allt kvöldið...
Svo er ég svoldið þekkt orðin, mogginn og mosfellingur eru alltaf á eftir mér.
Hver er besta bíómynd, sem þú hefur séð? held að þessa stundina sé það myndin 300..sem ég hugsa alveg að ég eigi efitr að fjárfesta í..borat er efst yfir svona fíflagang..
Er eldhúsið staður fyrir konur? alveg eins..en líka fyrir kalla...sjálf er ég ekkert ofsalega mikið fyrir eldhúsið nema þá til að borða.
Lístu sjálfum þér með einu orði: krullhærð. og er stolt af því..
held þessi spurningalisti segi svo sem ekki mikið um mig nema ég er krullhærð...held bara að ef fólk vill vita eitthvað um mig er málið bara kynnast mér.. persónulega dæmi ég ekki fólk eftir því hvað það skrifar um sjált sig, svo hvers vegna ætti ég að krefjast þess af öðrum?annars á ég mömmu pabba og tvo eldri bræður og eina ömmu
elsti bróðir minn á þrjú fallegustu börn á jarðríki og ég er ofsalega stolt frænka og finnnst fátt skemmtilegra en að fíflast og dekra svolítið við þau..
mamma mín er besta mamma, pabbi besti pabbi..bræðurnir umdeilanlegir..en að lokum held ég að þeir séu bara bestu bræður í heimi og amma mín er sú allrabesa mannekja í heimi..ætla verða alveg einsog amma..
ég á heima í grænu húsi með girðingu og stóran garð, á gráan peugot sem getur allt í heiminum og heilan helling af vinum sem tæki heila eilífð að lýsa.
í framtíðinni langar mig að eiga sjúkraþjálfarastofu útá florida, eiga börn og mann hús með girðinu og bíl með topplúgu.
mig langar líka ofsalega til að ferðast um allan heimin..
evrópa var tekin síðastliðið sumar með trompi í interrailinu okkar val, ferð sem okkur hlakkaði þvílíkt til að fara í, ferð sem við gátum ekki beðið eftir að klára, ferð sem við eigum þvílíkt góðar og skemmtilegar og leiðinlegar minningar úr, ferð sem gerði okkur pottþétt klárari manneskjur, betri vini og að alvöru ferðalöngum :)
....interrailið var geeggjað..
næst er það ameríka eða öllu heldur flórída þar sem ég ætla læra einkaþjálfarann og byrjar sú ferð þann 23 september með eitt stykki önnu rún í ferðatöskunni..
