Færslur: 2008 Desember

13.12.2008 02:30

Ótitlað

ég var að velta fyrir mér ef íslendingar þurfa að skipta um gjaldmiðil..
kannski í evruna... hvað verður um krónuna búðirnar?
þarf þá ekki að breyta nafninu í Evran? og er það ekki svoldið mjög hallærislegt, en á móti er mjög hallærislegt að mínu mati að vera með Krónubúðir í landi sem evran er í gangi..

pæling í boði Hönnu.

önnur pæling
af hverju eru engin jól án skötu, snjós, jólatrés, hamborgarahryggs og spilakvölda?

þriðja pælingin
af hverju eru aukanámskeið sett fyrir á laugardegi kl 9.30-16.00 ? mér finnst það hálfgerð geðveiki svona okkar  á milli..

fjórða pæling
hvernig í ruglinu fór ég að því að kaupa mér hnetusúkkulaði?? krapp.

fimmta pæling
hvernig stendur á því að mér tekst alltaf að verða veik á flórída þegar ég fer þanngað?
hvaða rugl er það?

langar í ...
snjó, sængina mína, íslenskt nammi, svefn, ræktina, fótbolta, monnía, bílinn minn, sjá nýja eldhúsið hans pabba, sjá gulla verða risa, vera búin með atvinnuviðtölin mín, vera búin að fá vinnu, fá desemberuppbótina, köku, áfengi og spil, dansa, tjútta og svo margt margt margt fleirra...

ég á..
hnetusúkkulaði, epli, brauð, kalkún, prótein, banana, pepsi max, puplix serjós

ég keypti mér í gær...
gallabuxur, síða peysu og bol.

hmmmm,...

ofsa gaman í ameríku fyrir utan veikindi og leðindi...það gengur yfir einsog  kreppann sem er að ganga yfir og ég ofsa ofsa glöð með það.
annars er þetta alveg að klárast, tímin líður svo sjúklega hratt að það er hálf hættulegt!

þetta blogg er að verða svoldið einsog leiðinlegt símtal? spurning um að fara sofa og vakna hress á aukanámskeiðið í fyrramálið eeeða?


klassískt! ! !

05.12.2008 00:33

Ótitlað

heil og sæl þrír dyggu aðdáendur!
vona að gallabuxurnar sem ég ætla gera mér sérferð í mallið á morgun bjargi vinskap okkar hafdis, valur eftir interrailið í fyrra þá held ég að ekkert, EKKERT geti eyðilagt okkar vinskap... hahaha

anywho
það sem er náttúrlega helst í gleðifréttum þessa dagana er að dollarinnn er að lækka, vonandi til frambúðar og vonandi meira, förum samt varlega í sjúka bjartsýni. lækkaði um heil 8,53% í dag, mjög ánægjulegt að mínu mat.
annað gleðiefni það sem mér finnst allra allra gleðilegast er að hanna björk halldórsdóttir fékk 87% í midterminu, já sæll það telst upp á næstum 20% hækkun frá síðasta prófi, sem mér finnst þó nokkuð góður árangur, enda vann ég ekkert lítið fyrir þessu.
annað gleðiefni, sólinn og hitin létu sjá sig aftur og ég fjárfesti í þessari líka fínu PRO taning spray oil, ligg núna og reyni að steikja mig.. sofnaði reyndar í dag í sólbaði og vaknaði með gæsahúð dauðans í skugganum haha. .sólin fer  á ákveðnum tímapunkti bakvið risastórt pálmatré hjá sundlauginni minni, það var frekar óþæginleg tilfinning.
annað sem mér finnst sjúklega gaman er að ég lærði í gær að intervaltraining brennir 9 sinnum meiri fitu en venjuleg "brennsla", það var gagnleagt og skemmtilegt að læra, kannski verð ég bara slim einn daginn... fór í sund í dag og tók interval spretti í sundi, get alveg sagt ykkur að ég hélt það myndi einhver þurfa koma og bjarga mér uppúr

svo er fullt af gleði að gerast
jólin að koma
thanksgiving búið
hrekkjavakan búin

kanarnir eru byrjaðir að jólaskreyta einsog vitleysingar í hitanum og ég fór í mallið með braga og einari um daginn og þar voru hreindýr úr tré.. svona runnar.. búið að skera útí hreindýr, í sólbaði! mér fannst það bara allt annað en jólalegt og finnst þetta með eindæmum asnalegt..

mér finnst þetta til dæmis alveg hættulega ójólalegt, svona okkar á milli
en við reyndum þó hvað við gátum hérna í gærkvöldið með allt jólaskrautið sem courtney kom með um daginn.



















það var gríðarlega einbeitningí að skreyta litlu fínu íbúðina okkar, og það var  mikil nákvæmisvinna sem fór þarna fram, gríííðarleg!!
og svo vilég síðast en allsekki síst kynna piparkökuhúsakeppni H&H sem að sjálfsögðu er ekki frestað þrátt fyrir að H-in séu í sitthvorri heimsálfunni og þeta er mitt framtak! Hafdís nú þarft nú að sanna þig, svo er frjáls þáttaka fyrir alla hina.. valur og thelma haha



















fyrsta taka



















setja snjóin á.. sjúklega ánægð með lífið

fallegsta hús í sögu 428 Los Altos Way! klár á því



















ég og "ekki" ofskreytta húsið mitt, sem ég gerði aalein ! !

og ein til að minna ykkur á að við erum alveg jafn fallegar og þegar við fórum




















erum samt ekki alveg svona sjúklega hvítar haha smá aukaflass þarna  með
hafdís sjáðu toppinn .. haha .. þetta aukadæmi sem við höfum ekki rakað í tjaaa.. 3 mánuði haha
bestu kveðjur úr ammríku



  • 1
Flettingar í dag: 43
Gestir í dag: 6
Flettingar í gær: 33
Gestir í gær: 4
Samtals flettingar: 172212
Samtals gestir: 42284
Tölur uppfærðar: 16.5.2012 23:36:29